Parhúsa og raðhúsalóðir í Holtahverfi

Akureyrarbær auglýsir eftir tilboðum í byggingarrétt par- og raðhúsalóða í Holtahverfi, á svæði milli Krossanesbrautar og smábátahafnarinnar í Sandgerðisbót. Um er að ræða flottar lóðir á svæði þar sem uppbygging er hafin og eru allar lóðirnar byggingarhæfar.

Tilboðum í lóðir skal skila rafrænt hér í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 miðvikudaginn 14. febrúar 2024 og verða tilboð opnuð í Ráðhúsinu kl. 14 sama dag í viðurvist þeirra umsækjenda sem þess óska. Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjenda

Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.

Eftirfarandi eru lóðir þar sem skila þarf inn tilboði í byggingarrétt. Með því að velja hlekk lóðar má nálgast útboðsgögn og í framhaldinu skila inn tilboði.

Lóð Húsgerð Fjöldi íbúða Lóðastærð - m²
Þursholt 14-18 Raðhús 3 1.681
Hulduholt 5-11 Raðhús 4 1.168
Hulduholt 18 Parhús 2 1.049
Hulduholt 20-24 Raðhús 3 1.121
Álfaholt 4-6 Parhús 2 700
Álfaholt 9-11 Parhús 2 918
Álfaholt 12-14 Parhús 2 835
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan