Stjórnsýslunefnd

5. fundur 25. ágúst 2010 kl. 08:00 - 10:10 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Hlín Bolladóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
Starfsmenn
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
  • Gunnar Frímannsson fundarritari
Dagskrá

1.Fundir stjórnsýslunefndar 2010-2014

Málsnúmer 2010080051Vakta málsnúmer

Farið var yfir fundaáætlun nefndarinnar til áramóta og fundartími ákveðinn kl. 08:10 - 10:00 á miðvikudögum.

2.Stjórnsýslunefnd - kynning á verkefnum

Málsnúmer 2010080048Vakta málsnúmer

Farið var yfir helstu breytingar á stjórnsýslu Akureyrarbæjar síðustu tvo áratugi og lagður fram listi yfir viðfangsefni stjórnsýslunefndar á síðasta kjörtímabili.

3.Starfsáætlanir bæjarstjórnar og nefnda 2010-2014

Málsnúmer 2010080049Vakta málsnúmer

Fjallað var um starfsáætlanagerðir bæjarstjórnar og fastanefnda á kjörtímabilinu 2010-2014. Lögð fram gögn um starfsáætlanir á síðasta kjörtímabili.

Formaður gerði grein fyrir að meirihlutinn hafi hafið vinnu við gerð starfsáætlana bæjarstjórnar og nefnda.

4.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 27. apríl 2010 samþykkti bæjarstjórn að vísa drögum að siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Akureyrarbæ til umræðu og afgreiðslu hjá nýrri bæjarstjórn.

Afgreiðslu frestað.

5.Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir

Málsnúmer 2007020100Vakta málsnúmer

Eftirtaldar fundargerðir voru lagðar fram til kynningar:
Fundargerð hverfisnefndar Naustahverfis með fulltrúum framboða í sveitarstjórnarkosningunum þann 29. maí sl. dags. 5. maí 2010.
Fundargerðir hverfisnefndar Naustahverfis dags. 10. maí og 10. ágúst 2010.
Fundargerð hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 4. maí 2010.
Fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dags. 8. júní 2010.
Fundargerðir hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dags. 9. mars og 28. apríl 2010.
Fundargerð hverfisráðs Grímseyjar dags. 13. júlí 2010.
Fundi slitið.

Fundi slitið - kl. 10:10.