Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

241. fundur 09. maí 2014 kl. 08:15 - 08:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðni Helgason framkvæmdastjóri
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eiríkur Jónsson áheyrnarfulltrúi S-lista mætti í forföllum Guðgeirs Halls Heimissonar.
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir mætti í forföllum Kristínar Þóru Kjartansdóttur áheyrnarfulltrúa V-lista.
Enginn mætti í forföllum Sigfúsar Arnars Karlssonar B-lista.

1.Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA

Málsnúmer 2014030072Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni dags. 24. mars 2014 frá framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar og félagsmálaráði um kostnaðarmat við hönnun og endurnýjun á tækjakosti í eldhúsi Hlíðar og breytingar á vaktrýmum í Suðurhlíð.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar fór yfir kostnaðaráætlunina og vísar málinu aftur til félagsmálaráðs.

2.Verkfundargerðir FA 2014

Málsnúmer 2014010024Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Borgargil 1 - Hyrna ehf: 5.- 7. verkfundur dags. 4. og 16. apríl og 5. maí 2014.

Fundi slitið - kl. 08:30.