Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

199. fundur 04. nóvember 2011 kl. 10:35 - 11:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Leiguíbúðir í Hrísey - sala á Miðbraut 9

Málsnúmer 2011090056Vakta málsnúmer

Lagt fram gagntilboð dags. 1. nóvember 2011 í Miðbraut 9 í Hrísey.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kauptilboðið fyrir sitt leyti.

2.Múli Grímsey - endurnýjun búnaðar fyrir skólann og félagsheimilið

Málsnúmer 2011100050Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá Gunnari Gíslasyni fræðslustjóra dags. 3. nóvember 2011 um endurnýjun búnaðar í Grunnskóla Grímseyjar og Múla félagsheimili Grímseyjar.

Stjórn Fasteigna Akureyrabæjar samþykkir að keyptur verði búnaður samkvæmt framlögðum fundargögnum.

3.Lystigarður - kaffihús og minjagripasala

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á fyrirhuguðu útboði á byggingu hússins.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að auglýsa útboð á byggingu hússins.

Fundi slitið - kl. 11:30.