Skólanefnd

12. fundur 22. ágúst 2016 kl. 13:30 - 15:10 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Vilborg Hreinsdóttir fulltrúi leikskólakennara boðaði forföll og varamaður komst ekki í hennar stað.
Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir fulltrúi leikskólabarna kom ekki á fundinn. Enginn varamaður kom í hennar stað.

1.Lokun Frístundar í vetrarfríi

Málsnúmer 2016080060Vakta málsnúmer

Rætt um hugmyndir um lokun Frístundar í vetrarfríi.

2.Kostnaður vegna námsgagna

Málsnúmer 2016080065Vakta málsnúmer

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsett 3. maí 2016 þar sem vakin er athygli á ábendingu Velferðarvaktarinnar og fleiri á kostnaðarþátttöku foreldra í námsgögnum barna sinna.
Skólanefnd felur fræðslustjóra að móta leiðir í samráði við skólastjórnendur til að samræma innkaup námsgagna þar sem kostnaði verði haldið í algjöru lágmarki.

3.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2016

Málsnúmer 2015050243Vakta málsnúmer

Farið yfir breytingar á yfirstandandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 í samræmi við tillögur aðgerðarhóps.
Skólanefnd vísar tillögu um breytingar á fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 til bæjarráðs.

Hanna Dögg Maronsdóttir fulltrúi D-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

4.Skólapúlsinn - ytra mat skóla

Málsnúmer 2015010179Vakta málsnúmer

Umræða um Skólapúlsinn - ytra mat skóla og fyrirkomulag kannana.

5.Sameining kostnaðarstöðva fyrir leik- og grunnskóla í Hrísey annars vegar og Grímsey hins vegar

Málsnúmer 2016080068Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild lagði til sameiningu á kostnaðarstöðvum fyrir leik- og grunnskóla í Hrísey og Grímsey með það að markmiði að einfalda stjórnendum launa- og bókhaldslegt utanumhald um þessar litlu einingar.
Skólanefnd samþykkti tillöguna.

6.Spurningalisti BSRB um dagvistunarúrræði sveitarfélaganna

Málsnúmer 2016080061Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar spurningalisti BSRB um dagvistunarúrræði sveitarfélaga.

Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir málið og kynnti svör við erindinu.

Fundi slitið - kl. 15:10.