Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2016-2019

Málsnúmer 2015050243

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 10. fundur - 01.06.2015

Umræður um helstu áherslur í fjárhagsáætlanagerð fyrir fræðslumál næstu ára.
Dagsskrárlið frestað.

Skólanefnd - 14. fundur - 17.08.2015

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar fór yfir helstu áherslur í fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2016.
Þegar hér var komið yfirgaf Eva Hrund Einarsdóttir D-lista fundinn kl. 14:53.

Skólanefnd - 16. fundur - 07.09.2015

Áframhaldandi vinna með fjárhagsáætlun.

Skólanefnd - 17. fundur - 14.09.2015

Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun 2016.

Skólanefnd - 18. fundur - 21.09.2015

Fyrir fundinn var lögð tillaga að fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála fyrir árið 2016. Tillagan gerði ráð fyrir því að það vanti 45.039.000 kr. upp á að rekstur ársins rúmist innan útgefins ramma sem er kr. 5.823.389.000. Tillagan gerði ekki ráð fyrir neinum breytingum á þjónustustigi skólanna og þeir yrðu reknir með sambærilegum hætti og verið hefur undangengin ár. Frestað var ákvörðun um gjaldskrárbreytingar.
Áætlunin gerði þó ráð fyrir að leikskólanum Sunnubóli yrði lokað frá og með miðju næsta ári og þá var ekki gert ráð fyrir starfrækslu leikskóladeildar í Grímsey. Þessar breytingar leiða til ríflega 27 m.kr. lægri kostnaðar á næsta ári.
Lagt var til að eftirtaldir þættir yrðu teknir inn í ramma: 6.000 þús.kr. vegna aukningar um 1,85 stöðugildi námsráðgjafa í grunnskólunum frá 1. ágúst 2016, 9.000 þús.kr. vegna tölvuumsjónar í grunnskólunum (50% staða í stærri skólunum frá 1. ágúst 2016), 8.000 þús.kr. vegna ráðningar mannauðstjóra í fullt starf á skóladeild, 17.200 þús.kr. vegna sumarlokana leikskóla (2ja vikna lokun), 4.000 þús.kr. vegna húsvörslu í leikskólunum, 10.000 þús.kr. vegna nútímavæðingar náms og kennslu og 15.000 þús.kr. vegna aukins svigrúms leik- og grunnskóla.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 og vísar henni til bæjarráðs.

Skólanefnd - 21. fundur - 09.11.2015

Þessum lið var frestað til næsta fundar.

Skólanefnd - 22. fundur - 16.11.2015

Árni Konráð Bjarnason rekstarstjóri fór yfir stöðu mála.
Umræður um fjárhagsáætlun.

Skólanefnd - 23. fundur - 30.11.2015

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á fjárhagsáætlun 2016 og kynnti áætlun fyrir árin 2017-2019.
Lagt fram til kynningar.

Skólanefnd - 24. fundur - 07.12.2015

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðu í kjölfar gjaldskrárbreytinga vegna kjarasamninga.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Eva Hrund Einarsdóttir fulltrúi D-lista og Preben Jón Pétursson fulltrúi Æ-lista sátu hjá.

Skólanefnd - 11. fundur - 08.08.2016

Skólanefnd vísar beiðni um aukafjárveitingu við fjárhagsáætlun 2016 vegna fræðslumála til bæjarráðs.

Skólanefnd - 12. fundur - 22.08.2016

Farið yfir breytingar á yfirstandandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 í samræmi við tillögur aðgerðarhóps.
Skólanefnd vísar tillögu um breytingar á fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 til bæjarráðs.

Hanna Dögg Maronsdóttir fulltrúi D-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.