Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

4. fundur 16. nóvember 2015 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Jón Heiðar Jónsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Heiðar Daðason
  • Lilja Guðmundsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Kristján Þorsteinsson
Dagskrá
Sigurjón Jóhannesson mætti sem fulltrúi skipulagsnefndar í forföllum Tryggva Más Ingvarssonar.

1.Viðurkenning samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra 2015

Málsnúmer 2015110081Vakta málsnúmer

Val á húsnæði til viðurkenningar á góðu eða bættu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Umræður um nokkra staði sem til greina koma og er formanni nefndarinnar falið að skoða þá nánar og velja hús til viðurkenningar í samráði við aðra nefndarmenn.

Viðurkenning verður svo veitt á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember n.k.

2.Miðbær - aðgengi að verslunum og þjónusturýmum

Málsnúmer 2015110091Vakta málsnúmer

Skoða þarf með húseigendum og/eða Miðbæjarsamtökunum hvernig eða hvort þeir geti bætt aðgengi að verslunum og öðru þjónusturými við Hafnarstræti (göngugötuna).

Formaður nefndarinnar greindi frá óformlegum viðræðum sem hann átti við fulltrúa Miðbæjarsamtakanna.
Formanni nefndarinnar er falið að vinna áfram að málinu.

3.Brekatún 2 - athugasemdir vegna aðgengis hreyfihamlaðra

Málsnúmer 2015110096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. nóvember 2015 þar sem Bragi Halldórsson gerir athugasemdir við aðgengi hreyfihamlaðra að húsi nr. 2 við Brekatún.
Skipulagsdeild og formanni nefndarinnar er falið að svara bréfritara.

Fundi slitið - kl. 14:30.