Viðurkenning samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra 2015

Málsnúmer 2015110081

Vakta málsnúmer

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 4. fundur - 16.11.2015

Val á húsnæði til viðurkenningar á góðu eða bættu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Umræður um nokkra staði sem til greina koma og er formanni nefndarinnar falið að skoða þá nánar og velja hús til viðurkenningar í samráði við aðra nefndarmenn.

Viðurkenning verður svo veitt á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember n.k.