Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

17. fundur 31. ágúst 2021 kl. 16:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Valdís Anna Jónsdóttir formaður
  • Sigrún María Óskarsdóttir
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri
Fundargerð ritaði: Karólína Gunnarsdóttir
Dagskrá

1.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla vinnuhóps um framtíðaruppbyggingu húsnæðismála í málaflokki fatlaðra.
Ráðið fagnar útkomu skýrslunnar og leggur áherslu á að farið verði eftir þeim tillögum sem þar koma fram, bæði til skemmri tíma og einnig til lengri tíma þar sem þörf fyrir uppbyggingu sértæks húsnæðis fyrir fatlaða er brýn.

Ráðið leggur áherslu á að horft verði til þess að framboð á sértæku húsnæði verði fjölbreytt þannig að það nýtist sem flestum.

2.Málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2019100133Vakta málsnúmer

Umræða um fundi komandi vetrar og dagskrárefni.

Fundi slitið - kl. 17:00.