Samfélags- og mannréttindaráð

129. fundur 07. ágúst 2013 kl. 17:00 - 18:05 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigmundur Sigfússon áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista mætti í forföllum Heimis Haraldssonar.
Sigmundur Sigfússon V-lista mætti í forföllum Guðrúnar Þórsdóttur.

1.Samfélags- og mannréttindadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030344Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við gerð langtímaáætlunar fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.

2.Styrktarsjóður EBÍ 2013

Málsnúmer 2013060161Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 20. júní 2013:
Erindi dags. 11. júní 2013 frá Brunabótafélagi Íslands þar sem auglýstur er umsóknafrestur í styrktarsjóð EBÍ fyrir árið 2013. Hvert aðildarsveitarfélag getur sent inn eina umsókn. Hægt er að sækja um vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélagsins og senda skal umsóknir fyrir lok ágústmánaðar nk.
Bæjarráð hvetur nefndir og deildir bæjarins til að skoða verkefni sem falla undir reglur sjóðins og senda tillögur til bæjarstjóra fyrir 10. ágúst nk.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:05.