Öldungaráð

6. fundur 02. maí 2017 kl. 09:00 - 09:45 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Sigurður Hermannsson varaformaður
  • Halldór Gunnarsson
  • Anna G Thorarensen
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá
Guðmundur Baldvin Guðmundsson sat fundinn í fjarveru Gunnars Gíslasonar.

Dagbjört Pálsdóttir boðaði forföll.

1.Heimasíða Akureyrar - endurskoðun 2016-2017

Málsnúmer 2017020127Vakta málsnúmer

Farið var yfir nýja heimasíðu Akureyrarbæjar.
Öldungaráð felur sviðsstjóra samfélagssviðs að koma athugasemdum á framfæri við vefnefnd.

2.Öldungaráð - önnur mál

Málsnúmer 2017040160Vakta málsnúmer

Öldungaráð samþykkir að boða til opins fundar um málefni aldraðra haustið 2017 í samstarfi við Akureyrarbæ og Félag eldri borgara á Akureyri.

Ráðið felur sviðsstjóra að hefja undirbúning og leggja tillögur að dagskrá fyrir ráðið á næsta fundi þess.

Fundi slitið - kl. 09:45.