Goðanes 6 - byggingarleyfi, geymsluhillur

Málsnúmer BN070207

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 484. fundur - 13.03.2014

Erindi dagsett 6. mars 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Ólafs Björnssonar ehf., kt. 660606-3350, og Veitunnar sf., kt. 630279-0389 sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á geymsluhillum í eignahlutum 0103 og 0106 í húsi nr. 6 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 514. fundur - 23.10.2014

Erindi dagsett 15. október 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Hörgárbrautar ehf., kt. 421111-1110 og HeiðGuðByggis ehf., kt. 610711-0570, sækir um breytingar og að skipta eign 0101 í Goðanesi 6 í tvær eignir.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 517. fundur - 13.11.2014

Erindi dagsett 15. október 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Hörgárbrautar ehf., kt. 421111-1110, og HeiðGuðByggis ehf., kt. 610711-0570, sækir um breytingar og að skipta eign 0101 í Goðanesi 6 í tvær eignir. Innkomnar teikingar 11. nóvember 2014. Meðfylgjandi er samþykki eigenda.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.