Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

956. fundur 29. febrúar 2024 kl. 13:00 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2023 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 22. febrúar 2024 eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Lækjarmói 2-8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024011037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. janúar 2024 þar sem Hans Orri Kristjánsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsum á lóð nr. 2-8 við Lækjarmóa. Innkomnar nýjar teikningar 27. febrúar 2024 eftir Hans Orra Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Gleráreyrar 1, rými 16, Blush - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023111060Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. febrúar 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum rýmis 16 á Glerártorgi í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Draupnisgata 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024020395Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. febrúar 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Karms, glugga og hurða ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á kjallara í húsi nr. 4 við Draupnisgötu. Innkomin ný gögn 29. febrúar 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.