Sameining framhaldsskóla á Akureyri

Málsnúmer 2023090488

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3819. fundur - 14.09.2023

Rætt um fyrirhugaða sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista á því athygli að hún teldi sig vanhæfa að fjalla um þennan lið. Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarráð. Samþykkt var samhljóða að ekki væri um vanhæfi að ræða.

Karl Frímannsson skólameistari MA og Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Gunnar Már Gunnarsson og Andri Teitsson fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt Láru Halldóru Eiríksdóttur sem sat undir þessum fundarlið í gegnum fjarfundarbúnað.

Að lokinni umræðu skólameistara og fundarmanna véku skólameistarar af fundi bæjarráðs en inn á fund bæjarráðs mættu fulltrúar nemendafélaga MA og VMA, Krista Sól Guðjónsdóttir forseti Hugins, Tómas Óli Ingvarsson varaforseti Hugins, Steinar Bragi Laxdal formaður Þórdunu og Linda Björg Kristjánsdóttir varaformaður Þórdunu.

Heimir Örn Árnason D-lista, Hulda Elma Eysteinsdóttir L-lista, Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista óska bókað:

Við teljum óábyrgt að sameina eigi MA og VMA miðað við þær forsendur sem liggja fyrir og tökum undir þær ábendingar sem nemendur og kennarar hafa nú þegar kynnt. Þegar skýrsla stýrihóps er skoðuð kemur margt þar fram sem er algjörlega á skjön við það sem mennta- og barnamálaráðherra fór yfir með bæjarstjórn í síðustu viku. Í skýrslunni má sjá að möguleg sameining skólanna er fyrst og fremst hagræðingaraðgerð, þar sem sparnaður birtist m.a. í fækkun námsráðgjafa, sálfræðinga, kennara og stækkun nemendahópa. Það fer gegn menntastefnu stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á vellíðan nemenda og jöfn tækifæri til náms. Við teljum afar mikilvægt að nemendur hafi val um bekkjarkerfi og áfangakerfi á Akureyri. Við leggjumst því gegn sameiningu MA og VMA og skorum á ráðherra að draga ákvörðun sína til baka.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista óskar bókað:

Ég sit hjá þar sem ég bar upp vanhæfi mitt undir málinu þar sem ég er kennari við VMA og tel mig eiga fjárhagslegra hagsmuna að gæta þar sem ég kenni á braut sem hefur átt undir högg að sækja. Bendi þó á að við verðum að geta þróað námið í átt að nútímanum. Það má þó ekki ana að neinu því eins og margir hafa bent á þá verður ekki aftur snúið ef ekki tekst vel til. Þetta verður að vera á þeim forsendum að við séum að efla nám á svæðinu og þjónustu við nemendur því annars er betur heima setið en af stað farið.

Bæjarstjórn - 3533. fundur - 19.09.2023

Rætt um fyrirhugaða sameiningu framhaldsskólanna á Akureyri.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti.

Til máls tóku Hilda Jana Gísladóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Gunnar Már Gunnarsson, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Heimir Örn Árnason, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Hlynur Jóhannsson og Halla Björk Reynisdóttir.

Halla Björk Reynisdóttir L-lista, Heimir Örn Árnason D-lista, Hulda Elma Eysteinsdóttir L-lista, Andri Teitsson L-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista, Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista, Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista, Gunnar Már Gunnarsson B-lista og Brynjólfur Ingvarsson óflokksbundinn óska bókað:

Við teljum einsýnt að skortur sé á trausti milli aðila, í allri umræðu um fyrirhugaða sameiningu/samstarf VMA og MA. Farið var of geyst, undirbúningi ábótavant og samráð hefði þurft að vera meira. Við leggjumst gegn sameiningu framhaldsskólanna tveggja á forsendum sparnaðar og hvetjum ráðherra til að veita skólasamfélögunum meira svigrúm til að koma saman og móta sér framtíðarsýn á eigin forsendum.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista óskar bókað:

Ég sem kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri tel mig eiga hagsmuna að gæta þar sem ég kenni á braut sem hefur átt undir högg að sækja og kýs því að bóka ekki með meirihluta bæjarstjórnar á grundvelli 5. og 6. töluliðar 3. gr. stjórnsýslulaga.