Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

925. fundur 20. júlí 2023 kl. 13:00 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Dalsbraut (KA svæði) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060490Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir áhorfendastúku og félagsheimili tengt núverandi íþróttahúsi á KA-svæðinu. Innkomnar nýjar teikningar 11. júlí 2023 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Eyrarlandsvegur 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023070360Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2023 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Hólmgeirs Þorsteinssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir bílskúr og steyptum tröppum við hús nr. 14 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Skarðshlíð 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060462Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júní 2023 þar sem Birgir Teitsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 20 við Skarðshlíð. Innkomnar nýjar teikningar 12. júlí 2023 eftir Birgi Teitsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Týsnes 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júní 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd T4 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir lóð nr. 4 við Týsnes. Innkomnar nýjar teikningar 19. júlí 2023 eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Álfaholt 8-10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023070178Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. júlí 2023 þar sem Haraldur S. Árnasona fyrir hönd Guðmundar Más Einarssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 8-10 við Álfaholt. Innkomnar nýjar teikningar 14. júlí 2023 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.