Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

901. fundur 02. febrúar 2023 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir
Dagskrá

1.Óseyri 2D - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011252Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2023 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Finns ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir húsi á lóð númer 2D við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Tryggvabraut 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011423Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hörpulundur 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011427Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Guðnýjar Jónsdóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 11 við Hörpulund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Goðanes 18 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022070593Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Akurbergs ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði á lóð nr. 18 við Goðanes. Innkomnar nýjar teikningar 26. janúar 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.