Baldursnes 3 - umsókn um skilti

Málsnúmer 2022110841

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 891. fundur - 24.11.2022

Erindi dagsett 17. nóvember 2022 þar sem Sigríður Magnúsdóttir fyrir hönd Atlantsolíu ehf. sækir um leyfi fyrir skilti við Baldursnes 3. Skipta á út eldra skilti fyrir nýtt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigríði Magnúsdóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 393. fundur - 14.12.2022

Erindi dagsett 17. nóvember 2022 þar sem Atlantsolía ehf. sækir um leyfi til að setja upp skilti á lóð nr. 3 við Baldursnes.

Stærð skiltis er 1 m x 2,04 m, hæð er 1,3 m.
Skipulagsráð samþykkir erindið með þeim skilyrðum að lágmarks tímalengd auglýsingabirtingar verði ein mínúta til samræmis við samþykkt um skilti og auglýsingar í lögsögu Akureyrarbæjar. Jafnframt samþykkir skipulagsráð að einungis verði birtar þær auglýsingar sem tengjast starfsemi lóðarinnar.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 894. fundur - 15.12.2022

Erindi dagsett 17. nóvember 2022 þar sem Sigríður Magnúsdóttir fyrir hönd Atlantsolíu ehf. sækir um leyfi fyrir skilti við Baldursnes 3. Skipta á út eldra skilti fyrir nýtt.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.