Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

891. fundur 24. nóvember 2022 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Baldursnes 3 - umsókn um skilti

Málsnúmer 2022110841Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2022 þar sem Sigríður Magnúsdóttir fyrir hönd Atlantsolíu ehf. sækir um leyfi fyrir skilti við Baldursnes 3. Skipta á út eldra skilti fyrir nýtt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigríði Magnúsdóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

2.Hrafnagilsstræti 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022110605Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 2 við Hrafnagilsstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Austurbyggð - umsókn um skilti

Málsnúmer 2022110535Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2022 þar sem Sigrún Harpa Sigurðardóttir f.h. Heilsuverndar ehf. sækir um leyfi fyrir skilti á lóð hjúkrunarheimilis við Austurbyggð 17. Meðfylgjandi eru skýringarmyndir og greinargerð.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:15.