Bráðabirgðabiðstöð SVA við Hofsbót - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2022030845

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 378. fundur - 23.03.2022

Lögð fram umsókn umhverfis- og mannvirkjasviðs dagsett 18. mars 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir færslu á biðstöð SVA við Hofsbót vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóð Hofsbótar 2.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.