Nonnahagi 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022010847

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 850. fundur - 03.02.2022

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd FES ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 7 við Nonnahaga.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 859. fundur - 13.04.2022

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd FES ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 7 við Nonnahaga. Innkomnar nýjar teikningar 11. apríl 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.