Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

859. fundur 13. apríl 2022 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Nonnahagi 12-20 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019110235Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HeiðGuðByggis ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð 12-20 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Nonnahagi 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022010847Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd FES ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 7 við Nonnahaga. Innkomnar nýjar teikningar 11. apríl 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hraunholt 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020030380Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. apríl 2022 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Valdimars Þengilssonar, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir viðbyggingu við hús nr. 9 við Hraunholt.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.