Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

850. fundur 03. febrúar 2022 kl. 13:00 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Norðurtangi 1 - umsókn um byggingarleyfi, starfsmannaaðstaða

Málsnúmer 2022010634Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2022 þar sem Gunnar Stefán Larsen fyrir hönd Hampiðjunnar Ísland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 1 við Norðurtanga. Fyrirhugað er að innrétta verslunarrými á jarðhæð og útbúa starfsmannaaðstöðu á annarri hæð.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Nonnahagi 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022010847Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd FES ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 7 við Nonnahaga.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Fjölnisgata 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2022011526Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. janúar 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Bjarkarness ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 6 við Fjölnisgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Árstígur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021020605Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. janúar 2022 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 2 við Árstíg. Meðfylgjandi eru teikningar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Freyjunes 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020090573Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Ragnar Auðunn Birgisson fyrir hönd Bygma Ísland sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1 við Freyjunes. Meðfylgjandi eru teikningar.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Aðalstræti 22 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun, snyrtistofa

Málsnúmer 2021091103Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2021 þar sem Gísli Jón Kristinsson fyrir hönd Mörtu Volina sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun í rými 0102 í húsi nr. 22 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að opna snyrtistofu. Innkomnar nýjar teikningar 19. janúar 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.