Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

821. fundur 08. júlí 2021 kl. 13:00 - 13:35 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hjálmar Árnason
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson Verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Gudmannshagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020020683Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júlí 2021 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf., sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Gudmannshaga. Meðfylgjandi eru teikningar Tryggva Tryggvasonar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Njarðarnes 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020120515Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2021 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Sigurveigar Árnadóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af breytingum í rými númer 0106 í húsi nr. 2 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hrókaland 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021011893Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 2 við Hrókaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 6. júlí 2021
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Margrétarhagi 3-5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021062110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júní 2021 þar sem Haraldur S. Árnason sækir fyrir hönd Þ.J.V.Verktaka ehf. um byggingarleyfi fyrir húsi númer 3-5 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Steindórshagi 1-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021070165Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. júlí 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:35.