Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál

Málsnúmer 2021030146

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3719. fundur - 11.03.2021

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 2. mars 2021 frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0304.html
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar ungmennaráðs.