Sjafnarnes 2 - umsókn um jarðvegsskipti

Málsnúmer 2021011841

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 800. fundur - 05.02.2021

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Skútabergs ehf. sækir um jarðvegsskipti fyrir atvinnumannvirki í samræmi við meðfylgjandi tillöguteikningar og deiliskipulag, á lóð nr. 2 við Sjafnarnes. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir jarðvegsskipti þar sem fyrirhugað mannvirki er í samræmi við deiliskipulag.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 809. fundur - 08.04.2021

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Skútabergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir skrifstofu- og þjónustuhúsi, mhl 04, á lóð nr. 2 við Sjafnarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 811. fundur - 23.04.2021

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Skútabergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir skrifstofu- og þjónustuhúsi, mhl 04, á lóð nr. 2 við Sjafnarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 15. apríl 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.