Krossanes 7 - umsókn um stöðuleyfi fyrir færanlega malbikunarstöð

Málsnúmer 2020060563

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 340. fundur - 08.07.2020

Erindi dagsett 15. júní 2020 þar sem Harpa Þrastardóttir sækir um stöðuleyfi fyrir hönd Norðurbiks ehf., fyrir færanlega malbikunarstöð af tegundinni Ammann á svæði sem nær til lóðarinnar Krossaness 7, sem ekki hefur verið úthlutað. Liggur fyrir samþykki hafnarstjóra. Verður stöðin rekin á þessum stað út júlímánuð þar til ný malbikunarstöð verður sett upp á lóð Norðurbiks að Ægisnesi 2.
Skipulagsráð samþykkir að veita stöðuleyfi í samræmi við umsókn.