Málræktarsjóður - aðalfundur 2018

Málsnúmer 2018050095

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3598. fundur - 17.05.2018

Erindi dagsett 9. maí 2018 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins föstudaginn 8. júní nk. kl. 15:30. Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Heklu á Hóteli Sögu í Reykjavík. Akureyrarbær á rétt á að skipa einn mann í fulltrúaráð sjóðsins.
Bæjarráð felur Hólmkeli Hreinssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum. Einnig tilnefnir bæjarráð Hólmkel í fulltrúaráð Málræktarsjóðs.