Framlenging á samningi um sorphirðu og tengdum verkefnum fyrir Akureyrarbæ

Málsnúmer 2018050012

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 32. fundur - 18.05.2018

Lagt fram erindi dagsett 27. apríl 2018 frá Gámaþjónustu Norðurlands ehf um vilja til að framlengja gildandi samning um þjónustu við sorphirðu og sorpflutning samkvæmt ákvæðum samningsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að fara í viðræður við Gámaþjónustu Norðurlands ehf.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 33. fundur - 29.05.2018

Lögð fram drög að framlengingu á gildandi samningum við Gámaþjónustu Norðurlands ehf, dagsett 28. maí 2018, um þjónustu við sorphirðu og sorpflutning samkvæmt ákvæðum samninganna Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Söfnun og flutningur úrgangs undirritaður 9. september 2010 og Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Móttaka og flutningur úrgangs undirritaður 27. janúar 2011.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengingarákvæði gildandi samninga verði notað og samningarnir framlengdir um fjögur ár frá 1. desember 2018, með uppsagnarákvæði á framlengingartíma. Báðum aðilum samninga er heimilt að segja upp samningum með 6 mánaða fyrirvara og þarf uppsögn að liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2020 og renna þá samningarnir út 30. nóvember 2020. Verði ekki uppsögn á samningum gilda þeir til 30. nóvember 2022.

Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að stuðlað verði að aukinni flokkun meðal íbúa Akureyrarbæjar og endurvinnsla verði aukin. Unnið verði skipulega að kynningu og fræðslu til bæjarbúa. Einnig að umgengni og þrif við grenndargáma og á athafnasvæðinu við Hlíðarfjallsveg verði bætt. Verkfundir verði haldnir reglulega og fylgst sé með að unnið sé eftir ákvæðum samningsins.