Umhverfis- og mannvirkjaráð

33. fundur 29. maí 2018 kl. 08:15 - 09:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Framlenging á samningum um sorphirðu og tengdum verkefnum fyrir Akureyrarbæ við Gámaþjónustu Norðurlands ehf

Málsnúmer 2018050012Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að framlengingu á gildandi samningum við Gámaþjónustu Norðurlands ehf, dagsett 28. maí 2018, um þjónustu við sorphirðu og sorpflutning samkvæmt ákvæðum samninganna Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Söfnun og flutningur úrgangs undirritaður 9. september 2010 og Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Móttaka og flutningur úrgangs undirritaður 27. janúar 2011.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengingarákvæði gildandi samninga verði notað og samningarnir framlengdir um fjögur ár frá 1. desember 2018, með uppsagnarákvæði á framlengingartíma. Báðum aðilum samninga er heimilt að segja upp samningum með 6 mánaða fyrirvara og þarf uppsögn að liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2020 og renna þá samningarnir út 30. nóvember 2020. Verði ekki uppsögn á samningum gilda þeir til 30. nóvember 2022.

Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að stuðlað verði að aukinni flokkun meðal íbúa Akureyrarbæjar og endurvinnsla verði aukin. Unnið verði skipulega að kynningu og fræðslu til bæjarbúa. Einnig að umgengni og þrif við grenndargáma og á athafnasvæðinu við Hlíðarfjallsveg verði bætt. Verkfundir verði haldnir reglulega og fylgst sé með að unnið sé eftir ákvæðum samningsins.

2.Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðkönnunar á arkitektahönnun dagsett 22. maí 2018.

Alls bárust 3 tilboð:



Kollgáta ehf kr. 34.450.000 86%

AVH ehf kr. 46.800.000 117%

Teiknistofa Arkitekta ehf kr. 57.000.000 143%

Kostnaðaráætlun kr. 40.000.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Kollgátu ehf.

3.Pálmholt - utanhússmálun Flúðir 2018

Málsnúmer 2018050221Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í utanhússmálun á leikskólanum Pálmholti.

Alls bárust 4 tilboð og eftir yfirferð er niðurstaðan eftirfarandi:



Litblær ehf kr. 2.598.500 58%

Betri fagmenn ehf kr. 3.750.080 83%

Íslenskir málarar ehf kr. 3.901.650 87%

Betra mál ehf kr. 8.164.745 181%

Kostnaðaráætlun kr. 4.500.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Litblæ ehf.

4.Listasafn - utanhússmálun 2018

Málsnúmer 2018050219Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í utanhússmálun á Listasafninu.

Alls bárust 2 tilboð og eftir yfirferð þeirra er niðurstaðan eftirfarandi:



Málverk ehf kr. 7.137.080 73%

Íslenskir málarar ehf kr. 9.383.600 96%

Kostnaðaráætlun kr. 9.800.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Málverk ehf.

Fundi slitið - kl. 09:15.