Kristjánshagi 1b - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016120055

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 615. fundur - 12.01.2017

Erindi dagsett 8. desember 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir Kristjánshaga 1b. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 619. fundur - 09.02.2017

Erindi dagsett 8. desember 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 1b við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 31. janúar 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 631. fundur - 18.05.2017

Lagðar inn teikningar 15. maí 2017 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 1b við Kristjánshaga.
Byggingafulltrúi samþykkir erindið.