Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands - skipun í stjórn

Málsnúmer 2014100035

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 172. fundur - 02.10.2014

Stjórn Akureyrarstofu á að tilnefna tvo fulltrúa í stjórn.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkti að tilnefna Helga Þorbjörn Svavarsson og Evu Hrund Einarsdóttur sem fulltrúa í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Stjórn Akureyrarstofu - 173. fundur - 14.10.2014

Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 2. október 2014 voru tilnefndir tveir fulltrúar í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Tilnefna þarf einn fulltrúa til viðbótar.

Stjórn Akureyrarstofu tilnefnir Elínu Margréti Lýðsdóttur sem þriðja mann í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.