Stjórn Akureyrarstofu

172. fundur 02. október 2014 kl. 16:15 - 18:15 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Elvar Smári Sævarsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Skúli Gautason fundarritari
Fundargerð ritaði: Skúli Gautason framkvæmdastjóri
Dagskrá
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.

1.Akureyrarvaka - samantekt

Málsnúmer 2014100022Vakta málsnúmer

Jón Gunnar Þórðarson og Kristín Sóley Björnsdóttir verkefnisstjórar Akureyrarvöku komu á fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir framkvæmd hátíðarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Jóni Gunnari og Kristínu Sóleyju fyrir vel unnin störf og einstaklega vel heppnaða Akureyrarvöku.

2.Minjasafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2014090276Vakta málsnúmer

Skipun í stjórn Minjasafnsins á Akureyri.

Stjórn Akureyrarstofu frestar afgreiðslu til næsta fundar.

3.Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands - skipun í stjórn

Málsnúmer 2014100035Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu á að tilnefna tvo fulltrúa í stjórn.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkti að tilnefna Helga Þorbjörn Svavarsson og Evu Hrund Einarsdóttur sem fulltrúa í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista vék af fundi við afgreiðslu málsins.

4.Fjárhagsáætlun 2015 - Akureyrarstofa

Málsnúmer 2014090261Vakta málsnúmer

Drög að fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2015 lögð fram til kynningar.

 

5.Náttúrugripasafn Akureyrar

Málsnúmer 2014100066Vakta málsnúmer

Málefni Náttúrugripasafnsins rædd.

 

Fundi slitið - kl. 18:15.