Skíðafélag Akureyrar - erindi um bætta aðstöðu og fleira tengt félaginu

Málsnúmer 2014090184

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 156. fundur - 25.09.2014

Erindi dagsett 16. september 2014 frá formanni ÍBA f.h. Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu og fleiru tengt félaginu.

Formanni íþróttaráðs og forstöðumanni íþróttamála falið að ræða við stjórn Skíðafélags Akureyrar.

Íþróttaráð - 164. fundur - 26.02.2015

Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 16. september 2014 frá formanni ÍBA f.h. Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu og fleiru tengt félaginu. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 25. september 2014.
Íþróttaráð samþykkir að veita Skíðafélagi Akureyrar skrifstofuaðstöðu í íþróttahúsinu í Laugargötu og sameiginlega félagsaðstöðu með Sundfélaginu Óðni á efri hæð íþróttahússins í Laugargötu.