Íþróttaráð

156. fundur 25. september 2014 kl. 14:00 - 17:30 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Sigurjón Jónasson
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð

Málsnúmer 2014080009Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun, 3ja ára áætlun og gjaldskrám fyrir starfsárið 2015.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls og Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar mættu á fundinn undir þessum lið.

2.Skíðafélag Akureyrar - erindi um bætta aðstöðu og fleira tengt félaginu

Málsnúmer 2014090184Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. september 2014 frá formanni ÍBA f.h. Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu og fleiru tengt félaginu.

Formanni íþróttaráðs og forstöðumanni íþróttamála falið að ræða við stjórn Skíðafélags Akureyrar.

3.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta 2014

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 17. september 2014 frá framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar varðandi endurnýjun rennibrauta og endurbætur á sundlaugarsvæðinu við Sundlaug Akureyrar.

Íþróttaráð frestar erindinu til næsta fundar.

4.Fimleikafélag Akureyrar - ósk um fjármagn til kaupa á nýrri yfirdýnu og dúk á fiberdýnu

Málsnúmer 2014090183Vakta málsnúmer

Erindi dagset 18. september 2014 frá Erlu Ormarsdóttur framkvæmdarstjóra Fimleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir nýrri yfirdýnu og dúk yfir fiberdýnuna í fimleikaaðstöðunni í íþróttamiðstöðinni í Giljaskóla.

Íþróttaráð frestar málinu til næsta fundar.

5.KKA - styrkbeiðni vegna gatnagerðar- og byggingarleyfisgjalds

Málsnúmer 2014080055Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi KKA Akstursíþróttafélags varðandi álögð gjöld bæjarins á íþróttafélög sem bæjarráð vísaði til íþróttaráðs á fundi sínum 21. ágúst sl. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 4. september sl.

Forstöðumanni íþróttamála og formanni íþróttaráðs falið að svara bréfritara.

Fundi slitið - kl. 17:30.