Hálönd, Hrímland 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012110032

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 421. fundur - 14.11.2012

Erindi dagsett 7. nóvember 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. SS Byggis ehf, kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús á lóð nr. 10 við Hrímland, Hálöndum. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 426. fundur - 20.12.2012

Erindi dagsett 13. desember 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi til byggingar frístundahúss á lóð nr. 10 við Hrímland. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Einnig er sótt um undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.11.1. Umferðarleiðir hreyfihamlaðra.
2. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
3. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
4. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 430. fundur - 29.01.2013

Erindi dagsett 16. október 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi til að byggja frístundahús á lóð nr. 10 við Hrímland.
Einnig er óskað eftir undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.11.1. Umferðarleiðir hreyfihamlaðra.
2. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
3. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
4. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.