Aðstaða fyrir Golfklúbb Akureyrar í Íþróttahöllinni - golfhermir

Málsnúmer 2012050172

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 121. fundur - 15.11.2012

Fyrirhugaðar framkvæmdir og breytingar á aðstöðu GA í kjallara Íþróttahallarinnar. Sigmundur Ófeigsson og Jón Steindór Árnason frá GA og Haukur Valtýsson frá ÍBA sátu fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlagðar hugmyndir að framkvæmdum og óskar eftir því að stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vinni málið áfram í samstarfi við íþróttaráð, GA og ÍBA.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 215. fundur - 16.11.2012

Rætt um aðstöðu fyrir golfhermi í kjallara Íþróttahallarinnar.

Íþróttaráð - 124. fundur - 17.01.2013

Forstöðumaður íþróttamála kynnti stöðu framkvæmda við aðstöðu GA í Íþróttahöllinni.

.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 220. fundur - 01.02.2013

Lagt fram minnisblað dags. 31. janúar 2013 vegna framkvæmdanna.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að farið verði í framkvæmdina skv. framlögðum gögnum og að fjárveiting til verkefnisins verði tekin af nýframkvæmdaáætlun ársins 2013.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 235. fundur - 13.12.2013

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 11. desember 2013 um framkvæmdina.