Fjárhagsáætlun 2012 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2011090047

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1129. fundur - 14.09.2011

Fjárhagsrammi ársins 2012 sem samþykktur var í bæjarráði kynntur.

Félagsmálaráð - 1131. fundur - 10.10.2011

Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA og Heiðrún Björgvinsdóttir rekstrarstjóri kynntu drög að fjárhagsáætlun 2012 fyrir Öldrunarheimili Akureyrar.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Bryndís Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri kynntu drög að fjárhagsáætlun fyrir fjölskyldudeild.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti drög að fjárhagsáætlun fyrir búsetudeild og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti drög að fjárhagsáætlun fyrir heilsugæslustöðina.

Félagsmálaráð - 1134. fundur - 10.11.2011

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK lögðu fram til afgreiðslu fjárhagsáætlanir sinna deilda fyrir árið 2012. Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir fjárhagsáætlanir deilda fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.