Félagsmálaráð

1134. fundur 10. nóvember 2011 kl. 14:00 - 17:00 Hlíð - samkomusalur
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Margrét Guðjónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Margrét Guðjónsdóttir
Dagskrá

1.Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012

Málsnúmer 2009090008Vakta málsnúmer

Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri 150 ára afmælis Akureyrarbæjar kynnti verkefnið og viðfangsefni afmælisársins.
Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Ester L. Magnúsdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.

2.Fjárhagserindi 2011 - áfrýjanir

Málsnúmer 2011010144Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Jóhann Ásmundsson V-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Ferliþjónusta - áfrýjun

Málsnúmer 2011110044Vakta málsnúmer

Snæfríð Egilson iðjuþjálfi og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri á búsetudeild kynntu áfrýjun varðandi ferliþjónustu.
Jóhann Ásmundsson V-lista sat ekki fundinn undir þessum lið.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

4.Fjárhagsáætlun 2011 - færsla fjárveitinga á milli ára

Málsnúmer 2011090042Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynntu ráðstöfun fjárveitinga sem bæjarráð heimilaði færslu á milli ára í félagsþjónustu. Um er að ræða 12 milljónir króna sem koma í hlut fjölskyldu- og búsetudeildar.

Félagsmálaráð samþykkir tillögurnar sem lúta að þróun starfsemi, endurnýjun búnaðar og eflingu starfsmanna.

5.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti verðmat á húseignum í eigu Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs. Akureyrarbær þarf að ákveða hvort óska eigi eftir leigu eða kaupum á húsnæðinu.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð vísar málinu til Fasteigna Akureyrarbæjar til frekari vinnslu í samvinnu við framkvæmdastjóra búsetudeildar og fjölskyldudeildar.

6.Skammtímadvöl - áfrýjun

Málsnúmer 2011110053Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti áfrýjun vegna skammtímavistunar.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Helga Erlendsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA og Unnur Harðardóttir deildarstjóri á ÖA sátu fundinn undir þessum lið.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

7.Fjárhagsáætlun 2012 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2011090047Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK lögðu fram til afgreiðslu fjárhagsáætlanir sinna deilda fyrir árið 2012. Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir fjárhagsáætlanir deilda fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

8.Íbúðasambýli - nýbygging 2012

Málsnúmer 2011110037Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram ósk um skipun starfshóps til undirbúnings nýbyggingar íbúðasambýlis. Kallað er eftir fulltrúum félagsmálaráðs og stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar, ásamt starfsmönnum frá Fasteignum Akureyrarbæjar, búsetudeild og fjölskyldudeild.

Formaður félagsmálaráðs lagði til að Dagur Dagsson verði fulltrúi félagsmálaráðs.

Ráðið samþykkir tillöguna samhljóma og vísar málinu til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

9.Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008080068Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur á fundi sínum 23. júní sl. falið samfélags- og mannréttindaráði að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna. Rætt var um stofnun vinnuhóps.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að stofna vinnuhóp um mat á fjölskyldustefnu. Fulltrúar ráðsins verða Heimir Haraldsson sem verður formaður hópsins og Guðlaug Kristinsdóttir. Óskað er eftir tilnefningum frá félagsmálaráði, framkvæmdaráði, íþróttaráði, skipulagsnefnd, skólanefnd, stjórn Akureyrarstofu og umhverfisnefnd.

Félagsmálaráð tilnefnir Oktavíu Jóhannesdóttur sem sinn fulltrúa í endurskoðun fjölskyldustefnunnar.

10.Öldrunarheimili Akureyrar - kynning á gæðavísum í RAI-mati

Málsnúmer 2011100123Vakta málsnúmer

Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynnir gæðavísa í RAI-mati.

Frestað vegna tímaskorts.

11.Öldrunarheimili Akureyrar - virkur vinnustaður 2011-2014

Málsnúmer 2011100122Vakta málsnúmer

Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynnir samstarfsverkefni ÖA og Virk starfsendurhæfingar.

Frestað vegna timaskorts.

12.Öldrunarheimili Akureyrar - fræðsluáætlun 2011-2012

Málsnúmer 2011100121Vakta málsnúmer

Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynnir fræðsluáætlun 2011-2012 fyrir öldrunarheimilin.

Frestað vegna tímaskorts.

Fundi slitið - kl. 17:00.