Gleráreyrar 1 - umsókn um leyfi fyrir skiltum

Málsnúmer 2011080110

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 363. fundur - 07.09.2011

Erindi dagsett 26. ágúst 2011 þar sem Aðalsteinn Snorrason f.h. SMI ehf., kt. 470296-2249, sækir um leyfi til að reisa tvo skiltastanda með upplýstum skiltum við aðalinngang Glerártorgs að Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Aðalstein Snorrason.

Skipulagsstjóri samþykkir uppsetningu skiltastandanna en með því skilyrði að hámarksskiltaflötur verði ekki stærri en 6m² hver skv. gr. 7.4.1 í samþykkt um skilti og auglýsingar í lögsögu Akureyrarkaupstaðar.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 381. fundur - 18.01.2012

Aðalsteinn Snorrason f.h. SMI ehf., kt. 470296-2249, sendir inn leiðréttar teikningar af auglýsingaskiltum við aðalinngang Glerártorgs að Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Aðalstein Snorrason.
Skipulagsstjóri samþykkir teikningarnar.