Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

381. fundur 18. janúar 2012 kl. 13:00 - 13:55 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Aðalstræti 9 - umsókn um byggingarleyfi fyrir útigeymslu

Málsnúmer 2012010170Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. janúar 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Benedikts Arthurssonar og Hrannar Friðriksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir útigeymslu við húsið nr. 9 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru nýjar reyndarteikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomið skriflegt samþykki nágrannanna að Aðalstræti 7 fyrir steyptan stoðvegg milli lóða.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Espilundur 5 - reyndarteikningar

Málsnúmer BN080191Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. janúar 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson leggur fram reyndarteikningar af viðbyggingu að Espilundi 5.

Skipulagsstjóri samþykkir teikningarnar.

3.Fannagil 1 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer SN090062Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 10. júlí 2009 þar sem Ágúst Torfi Hauksson sækir um stækkun á lóð sinni að Fannagili 1. Stækkunin nemi 3 m til vesturs.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Lóðarskrárritara er falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði í samræmi við gildandi deiliskipulag.

4.Gleráreyrar 1 - umsókn um leyfi fyrir skiltum

Málsnúmer 2011080110Vakta málsnúmer

Aðalsteinn Snorrason f.h. SMI ehf., kt. 470296-2249, sendir inn leiðréttar teikningar af auglýsingaskiltum við aðalinngang Glerártorgs að Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Aðalstein Snorrason.
Skipulagsstjóri samþykkir teikningarnar.

5.Lerkilundur 15 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011090147Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2011 þar sem Halldór Snæbjörnsson og Gróa Björk Jóhannesdóttir sækja um að setja timburþak ofan á bílskúr, endurnýja þak og glugga á íbúðarhúsi og gera fleiri breytingar að Lerkilundi 15. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 12. janúar 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Mýrarvegur 115 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokun

Málsnúmer 2011090089Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2012 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Húsfélags Mýrarvegs 115, kt. 411105-0400, sækir um að setja upp svalalokun á öllum svölum og veröndum hússins að Mýrarvegi 115. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Skipagata 14 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á 3. hæð suðurhluta

Málsnúmer 2011020103Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir leggur inn nýjar reyndarteikningar af breytingum á suðurhluta 3. hæðar að Skipagötu 14.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

8.Urðargil 26 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer SN090071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júlí 2009 þar sem Jón Pétur Karlsson Trampe og Sigrún Bjarnhéðinsdóttir sækja um stækkun á lóð sinni að Urðargili 26. Stækkunin nemi 6 m til vesturs.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Lóðarskrárritara er falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði í samræmi við gildandi deiliskipulag.

9.Þingvallastræti 23 - umsókn um aðstöðu starfsmanna

Málsnúmer BN110009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2012 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Þingvangs ehf., kr. 671106-0750, óskar eftir að fá pláss í horni á lóð tjaldsvæðisins, næst Þórunnarstræti, vegna aðstöðu til bráðabirgða (sjá viðhengi). Er það hugsað sem aðstaða fyrir byggingarefni, kaffiaðstaða og skrifstofa byggingarstjóra. Innkomið samþykki Tryggva Marínóssonar f.h. lóðarhafa dagsett 12. janúar 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir tímabundið leyfi fyrir vinnuaðstöðu til 15. maí 2012.

10.Eyrarlandstún/FSA 147650 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á 3. hæð norðurálmu

Málsnúmer 2012010154Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjúkrahússins á Akureyri, kt. 580369-2229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss á 3. hæð norðurálmu sjúkrarhússins að Eyrarlandstúni. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:55.