Lækjargata 22 b - umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbótum

Málsnúmer 2011050112

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 349. fundur - 25.05.2011

Erindi dagsett 19. maí 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Sigríðar Maríu Egilsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsinu að Lækjargötu 22b. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 354. fundur - 29.06.2011

Erindi dagsett 19. maí 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Sigríðar Maríu Egilsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsinu að Lækjargötu 22b. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomin umsögn frá Húsfriðunarnefnd 9. júní 2011. Innkomnar nýjar teikningar 21. júní 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 359. fundur - 10.08.2011

Erindi dagsett 9. ágúst 2011 þar sem Pétur Kristjánsson sækir um að vera byggingarstjóri við lagfæringar að Lækjargötu 22b.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 363. fundur - 07.09.2011

Ingólfur Guðmundsson f.h. Sigríðar Maríu Egilsdóttur lagði fram til samþykktar þann 24. ágúst 2011 breyttar teikningar vegna endurbóta á húsinu að Lækjargötu 22b.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.