Starfsáætlanir skóla 2011-2012

Málsnúmer 2011040147

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 14. fundur - 02.05.2011

Fyrir fundinn var lagt yfirlit yfir samræmingu á skipulagsdögum og vetrarfríum skóla á Akureyri. Þar kemur fram að ekki hefur náðst samkomulag milli stjórnenda leik- og grunnskóla norðan Glerár um samræmingu starfsdaganna þriggja.

Skólanefnd telur mikilvægt að starfs- og skipulagsdagar leik- og grunnskóla séu samræmdir til að mæta sem best óskum foreldra. Skólanefnd samþykkir að skólastjórar leik- og grunnskóla norðan Glerár endurskoði fyrirliggjandi skóladagatöl þannig að starfs- og skipulagsdagar leik- og grunnskólanna séu samræmdir.

Skólanefnd - 16. fundur - 16.05.2011

Fyrir fundinn var lögð tillaga um skipulagsdaga og vetrarfrí í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar skólaárið 2011-2012.

Skólanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

Skólanefnd - 18. fundur - 08.06.2011

Fyrir fundinn voru lögð skóladagatöl Tónlistarskólans, grunnskólanna og leikskólanna fyrir skólaárið 2011-2012.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl skólanna.

Skólanefnd - 20. fundur - 04.07.2011

Erindi dags. 3. júní 2011 frá skólastjóra Naustatjarnar. Óskað er eftir breytingu á skóladagatali leikskólans fyrir næsta starfsár. Breytingar fela það í sér að færa kennarafund sem áætlaður var eftir hádegi 26. ágúst til 22. ágúst ásamt því að fá að loka leikskólanum einnig fyrir hádegi þennan dag vegna námskeiðs sem áætlað er allan daginn í Jákvæðum aga, en leikskólinn er í samstarfi við Naustaskóla um þetta verkefni. Leitað hefur verið samþykkis foreldraráðs og liggur það fyrir.
Þá er óskað eftir því að skipulagsdagur 5. mars verði fluttur til 18. apríl, til þess að ná samfelldri þriggja daga lokun leikskólans svo tækifæri gefist fyrir starfsmenn leikskólans til að fara í náms- og kynnisferð sem staðið hefur til um nokkurt skeið að fara í.

Skólanefnd samþykkir erindið.

Skólanefnd - 33. fundur - 21.11.2011

Erindi dags. 17. nóvember 2011 frá Eyrúnu Skúladóttur skólastjóra Glerárskóla þar sem hún óskar eftir breytingu á skóladagatali Glerárskóla fyrir skólaárið 2011-2012. Óskað er eftir því að færa skólaslit sem vera eiga 4. júní til 1. júní og vera með tvöföld skólaslit þann dag. Skólaráð Glerárskóla hefur fjallað um þessa ósk og samþykkt hana. Ástæða þessarar óskar er fyrirhuguð náms- og kynnisferð starfsmanna til Ítalíu dagana 2.- 9. júní 2012.

Skólanefnd samþykkir erindið.