Ráðhús - stigahús á norðurhlið

Málsnúmer 2011040119

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 209. fundur - 25.05.2012

Lagt fram minnisblað dags. 23. maí 2012 frá Fasteignum Akureyrarbæjar þar sem kemur meðal annars fram áætlaður kostnaður við framkvæmdina.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2013.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 226. fundur - 07.06.2013

Lagðar fram til kynningar hugmyndir að stigahúsinu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 256. fundur - 06.02.2015

Lagt fram minnisblað dagsett 4. febrúar 2015 um stigahús á norðurhlið Ráðhúss og rætt um væntanlegt útboð á framkvæmdum.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að bjóða framkvæmdina út.
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista greiddi atkvæði á móti.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 259. fundur - 20.03.2015

Lögð fram niðurstaða útboðs á byggingu flóttastiga á norðurhlið Ráðhúss. Engin tilboð bárust í verkið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að verkið verði boðið aftur út síðar á árinu.