Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

259. fundur 20. mars 2015 kl. 08:15 - 09:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenu Þuríðar Karlsdóttur.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Ísaksen.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Ráðhús - stigahús á norðurhlið, sem verði 6. liður á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

1.Fjárhagsáætlun 2015 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014080035Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið og fór yfir fjármögnun Fasteigna Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fjármálastjóra fyrir góða kynningu.

2.Naustaskóli - íþróttahús

Málsnúmer 2015020029Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á innanhússfrágangi í íþróttahúsi Naustaskóla.
Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Dagur Fannar Dagsson L-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfann að fjalla um þennan lið.
Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Dagur Fannar Dagsson L-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við eftirfarandi aðila:
Bút ehf í lagnahlutann, Blikk- og tækniþjónustuna ehf í loftræstihlutann, Rafmenn í rafmagnshlutann, Trésmiðju Kristjáns Jónassonar ehf í húsasmíða- og innréttingahlutann,
Viðar Þór Pálsson í dúkalagnahlutann og Betri Fagmenn ehf í málningarhlutann.

3.Hof menningarhús - kerfisloft í Hömrum

Málsnúmer 2015030192Vakta málsnúmer

Rætt um óhapp sem varð í Hofi þar sem kerfisloftaplata í Hömrum féll í gólfið.

4.Búnaðarkaup fyrir skóla og leikskóla - óskir skóladeildar um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar

Málsnúmer 2015030181Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 18. mars 2015 frá skólanefnd þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa í skólum og leikskólum á árinu.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir búnaðarkaupin samkvæmt framlögðum gögnum.

5.Pálmholt - beiðni um viðbætur við snjóbræðslu

Málsnúmer 2015030201Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. mars 2015 vegna beiðnar um viðbætur við snjóbræðslu við leikskólann Pálmholt.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2016.

6.Ráðhús - stigahús á norðurhlið

Málsnúmer 2011040119Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á byggingu flóttastiga á norðurhlið Ráðhúss. Engin tilboð bárust í verkið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að verkið verði boðið aftur út síðar á árinu.

7.Verkfundargerðir FA 2015

Málsnúmer 2015010093Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Skautahöllin - endurnýjun á svelli: 1. fundur verkefnisliðs dagsett 18. mars 2015.

Fundi slitið - kl. 09:55.