Regur fyrir Menningarsjóð Akureyrar - endurskoðun 2011

Málsnúmer 2011010069

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 87. fundur - 13.01.2011

Farið yfir drög að endurskoðuðum reglum um Menningarsjóð Akureyrar.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Stjórn Akureyrarstofu - 89. fundur - 03.02.2011

Lagðar fram til samþykktar endurskoðaðar reglur um sjóðinn og vinnureglur um úthlutun úr honum. Helstu breytingar á vinnureglum eru eftirfarandi:
Auglýst er einu sinni á ári eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóðnum. Heimilt er að auglýsa aukaúthlutun ef fjárheimildir leyfa. Fjárhæð þeirra styrkja sem í boði eru fara eftir heimildum Menningarsjóðs í fjárhagsáætlun hverju sinni og hve hátt hlutfall styrkja er bundið tímabundnum samningum.
Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu og verkefnisstjóri geta í sameiningu afgreitt styrki að upphæð kr. 75.000 eða lægri fyrir allt að 1 mkr. á árinu 2011. Um tvenns konar styrki getur verið að ræða:
a) Styrki til smærri menningarviðburða.
b) Ferðastyrki til listamanna frá Akureyri sem fara annað til að fremja eða sýna list sína. Skal þá m.v. að ferðastyrkur v/listviðburðar innanlands nemi 25 þús. kr. og styrkur vegna ferðar til útlanda nemi 50 þús. kr. Hver listamaður getur einungis fengið einn slíkan styrk á ári.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.