Ferðamannastaðir á Íslandi - bætt aðstaða

Málsnúmer 2010070043

Vakta málsnúmer

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 2. fundur - 23.09.2010

Tölvubréf dags. 8. júlí 2010 frá Jóni Gunnari Benjamínssyni vegna verkefnis sem hann er að vinna að fyrir Ferðamálastofu um bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra samþykkir að óska eftir því við framkvæmdaráð að Kjarnaskógur og Lystigarðurinn verði framlag Akureyrarkaupstaðar til verkefnis Ferðamálastofu "bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi".

Nefndin áskilur sér þó rétt til að óska eftir að fleiri stöðum verði bætt við á seinni stigum.

Framkvæmdaráð - 219. fundur - 15.10.2010

4. liður í fundargerð samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra dags. 23 september 2010:
Tölvubréf dags. 8. júlí 2010 frá Jóni Gunnari Benjamínssyni vegna verkefnis sem hann er að vinna að fyrir Ferðamálastofu um bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra samþykkir að óska eftir því við framkvæmdaráð að Kjarnaskógur og Lystigarðurinn verði framlag Akureyrarkaupstaðar til verkefnis Ferðamálastofu "bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi".
Nefndin áskilur sér þó rétt til að óska eftir að fleiri stöðum verði bætt við á seinni stigum.

Framkvæmdaráð samþykkir að fela starfsmönnum framkvæmdeildar að taka saman lista yfir þær úrbætur sem ráðast þarf í til að aðgengi fyrir fatlaða í Lystigarðinum og í Kjarnaskógi teljist fullnægjandi. Framkvæmdaráð þakkar bréfritara erindið.