Fundaáætlun skólanefndar 2010

Málsnúmer 2010060104

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 13. fundur - 28.06.2010

Fyrir fundinn var lögð tillaga að fundaáætlun skólanefndar tímabilið ágúst - desember.

Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt með þeirri breytingu að heimsóknir í skóla verði fyrir hádegi þá mánudaga sem fundir verða haldnir í skólanefnd. Fræðslustjóra er falið að gera tillögu að heimsóknum í skólana.

Skólanefnd - 16. fundur - 30.08.2010

Fyrir fundinn var lögð uppfærð tillaga að fundaáætlun skólanefndar fyrir haustmánuði 2010 og áætlaðar heimsóknir skólanefndar í leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar. Þar er gert ráð fyrir því að skólanefnd fari í tvær skólaheimsóknir að morgni alla mánudaga sem fundur er haldinn í nefndinni. Er reiknað með að í febrúar 2011 hafi skólanefnd heimsótt alla leik-, grunn- og tónlistarskóla í Akureyrarbæ.

Skólanefnd samþykkir tillöguna.