Skólanefnd

13. fundur 28. júní 2010 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigurveig S Bergsteinsdóttir formaður
  • Preben Jón Pétursson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Gísli Aðalsteinsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Björg Sigurvinsdóttir
Starfsmenn
  • Gunnar Gíslason fundarritari
Dagskrá

1.Hanbók skólanefndar - 2010-2014

Málsnúmer 2010060093Vakta málsnúmer

Á fundinum voru teknar fyrir til kynningar samþykkt um skólanefnd, samþykkt um stjórn Akureyrarkaupsstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar og reglur um ábyrgðarmörk og starfshætti stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna í stjórnsýslu Akureyrarbæjar

Tekið fyrir til kynningar og umræðu.

2.Fundaáætlun skólanefndar 2010

Málsnúmer 2010060104Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að fundaáætlun skólanefndar tímabilið ágúst - desember.

Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt með þeirri breytingu að heimsóknir í skóla verði fyrir hádegi þá mánudaga sem fundir verða haldnir í skólanefnd. Fræðslustjóra er falið að gera tillögu að heimsóknum í skólana.

Fundi slitið - kl. 16:30.