Kjarasamninganefnd

5. fundur 26. október 2011 kl. 08:15 - 09:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hjalti Ómar Ágústsson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir fundarritari
Dagskrá

1.Yfirvinna starfsmanna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010030034Vakta málsnúmer

Á fundi kjarasamninganefndar 18. mars sl. var umfjöllun um þróun yfirvinnu hjá stofnunum íþróttadeildar og var niðurstaða fundarins að fela íþróttafulltrúa að vinna tillögur varðandi einstaka stofnanir. Á fund kjarasamninganefndar mættu Nói Björnsson formaður íþróttaráðs, Kristinn H. Svanbergsson íþróttafulltrúi, Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar og íþróttadeildar og kynntu aðgerðir til að draga úr yfirvinnu í Hlíðarfjalli veturinn 2011-2012.

Kjarasamninganefnd þakkar kynninguna.

2.TV einingar - félagsráðgjafar og sálfræðingar - PMTO meðferðarnám

Málsnúmer 2011100057Vakta málsnúmer

Kynnt erindi frá félagsráðgjöfum og sálfræðingum um greiðslu TV eininga vegna PMTO meðferðarnáms.

Kjarasamninganefnd bendir bréfriturum á að gert er ráð fyrir fjárveitingu í fjárhagsáætlun ársins 2012 til úthlutunar TV eininga vegna verkefna og hæfni. Í samræmi við gildandi reglur Akureyrarbæjar um úthlutun TV eininga verður næst auglýst eftir umsóknum vorið 2012.

Fundi slitið - kl. 09:45.