Kjarasamninganefnd

5. fundur 07. maí 2021 kl. 13:00 - 14:20 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2020-2021, bókun 5

Málsnúmer 2020110842Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá kjarasamninganefndar 27. apríl 2021.

Erindi frá Karli Frímannssyni sviðsstjóra fræðslusviðs dagsett 26. nóvember 2020 vegna bókunar 5 í nýgerðum kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.

Lögð fram erindi dagsett 21. janúar 2021 frá Eyrúnu Skúladóttur og erindi dagsett 16. desember 2020 frá Elíasi Gunnari Þorbjörnssyni.

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kjarasamninganefnd hafnar framlögðum erindum þar sem ekki eru forsendur fyrir greiðslum skv. bókun 5 í samningi Skólastjórafélags Íslands í þeim tilvikum sem um ræðir.

2.Betri vinnutími

Málsnúmer 2021041145Vakta málsnúmer

Umfjöllun um innleiðingu ákvæða kjarasamninga með gildistíma frá 1. maí 2021 um Betri vinnutíma starfsfólks í vaktavinnu, sjá www.betrivinnutimi.is.

3.Stytting vinnuviku dagvinnufólks

Málsnúmer 2021041143Vakta málsnúmer

Umfjöllun um styttingu vinnuviku dagvinnufólks 1. janúar 2021.

Fundi slitið - kl. 14:20.